Jólavefurinn 2000 - Aðalsíða

Skata á Þorláksmessu 23. desember

Einn íslenskur siður tengdur jólum er að borða fisk á Þorláksmessu. Frá Vestfjörðum barst sú venja að borða skötu og núna er það útbreiddur siður að margir koma saman á Þorláksmessu annað hvort á heimilum eða veitingahúsum og borða skötu. Skata og saltfiskur hafa verið á borðum í veitingahúsinu Naustinu í Reykjavík á Þorláksmessu alveg frá árinu 1954. Gestir þennan dag halda í gamlar hefðir, sömu gestirnir koma ár eftir ár.

Algengt er sömu hóparnir (vinnufélagar eða vinir) komi ár eftir ár og eigi sömu borðin - nokkrir eru núna að koma í skötuveisluna á Naustinu í 45-46 skiptið.

Hér er Steingrímur Hermannsson fyrrum forsætisráðherra mættur í skötuna.

Það kemur alls konar fólk í skötuna þennan dag og á öllum aldri en flestir koma í hópum til að njóta samverunnar við félaga og vini um leið og þeir snæða lostætið. Hóparnir eru sumir stórir t.d kemur alltaf stór hópur frá Lionsklúbbnum Nirði í Reykjavík.

Í mörg ár voru það eingöngu karlmenn sem snæddu skötu á Naustinu þennan dag en svo var ein kona með í nokkur ár, síðan bættist önnur við og konum hefur fjölgað hin síðari ár eins og sést á þessari mynd.

Skatan er framreidd á þrjá vegu:
MIKIÐ KÆST.
MILLI KÆST
og TINDABYKKJA
og SALTFISKUR alt með vestfiskri hnoðmör og floti.

Sterkur, bragðmikill og saltur matur kallar fram þorsta. Það er hefð hjá mörgum að drekka staup af íslensku brennivíni með skötunni.

Það er mikið um að vera í eldhúsinu þennan dag í Naustinu. Skötuveislan er í hádeginu, það er alltaf fullt og um 300 manns koma og snæða skötu í hádeginu þennan dag á Naustinu.

Hefðin er sú á Naustinu þennan dag að skatan er ávallt borin á borð gestana (ekki hlaðborð).

Það þarf snör handtök hjá matreiðslumönnum og framreiðslufólki í Naustinu að færa upp og bera fram kúfuð föt af rjúkandi skötu og saltfiski með hnoðmör og floti.

Það líka hægt að stappa skötuna og hér koma tvær uppskriftir af því:

Uppskriftir að skötustöppu (heimild www.uppskriftir.is)

Skata að gömlum vestfirskum sið

800 g skata, vel kæst
300 g hnoðmör, vestfirskur
salt

Matreiðsla
Sjóðið skötuna. Hreinsið brjósk og roð af skötunni. Stappið vel saman við hana hnoðmör og saltið eins og þurfa þykir.

Framreiðsla
Berið stöppuna fram heita með kartöflum og rúgbrauði. Einnig má láta stöppuna kólna í formi, skera hana í sneiðar og hafa hana með brauði.

Hollráð
Í staðinn fyrir hnoðmör má nota tólg eða súrt smjör.

Skötustappa að nútímasið

600 g skata, kæst eða söltuð
300 g kartöflur, soðnar og flysjaðar
150 g smjör
3 stk hvítlauksrif, má sleppa
pipar, nýmalaður hvítur
salt
steinselja

Matreiðsla
Sjóðið skötuna og kartöflurnar og saxið niður hvítlauksrifin. Búið til mauk úr skötu og kartöflum. Hrærið mjúkt smjörið saman við ásamt hvítlauknum. Bragðbætið með salti og pipar. Setjið stöppuna á fat eða disk.

Til skrauts
Skreytið með steinselju.

Framreiðsla
Berið skötustöppuna fram með brauði og smjöri.

Mynd til hægri er eftir Jón Baldur Hlíðberg www.fauna.is

Tengingar:

Tindaskata

Heimild að skötuhádegisverði á Naustinu er Hörður Sigurjónsson markaðs- og veitingastjóri Naustsins. Salvör Gissurardóttir tók ljósmyndir á Þorláksmessu 1999 á Naustinu.