| Lúsíuhátíð 13. desember | |
Í
Svíþjóð er siður að halda upp á 13.
desember með Lúsíuhátíð þar sem
Lúsía og og þernur hennar syngja jólalög.
Snemma morguns eru á ferli hvítklæddar lúsíur
með ljós í hárinu sem vekja fólk og koma
færandi hendi með bakka þar sem á er kaffi, piparkökur
og lúsíuketti. Lúsíukettirnir eru smábrauð
með kryddinu saffran sem gerir þau fallega sólgul og ilmandi.
Þau eru gjarnan formuð eins og hið forna tákn sólhjól.
Lúsíurnar með ljós í hári og gullnu
brauðin formuð með geisla eins og sólin minna á
birtu og yl þegar skammdegið er sem mest.
Það er venjan að syngja Lúsíulagið þennan dag en hér er það með íslenskum texta eftir Elsu E. Guðjónsson. Smelltu hér til að spila lagið Heilög Lúsía Hljóð er in höfga nótt. Birtir af kertum brátt, Veröld í vændum á Drottinn því bjarma ber Líða um lönd og sæ Hennar lof heyrast skal 1996/1997 Elsa E. Guðjónsson.
Saffranbrauð Í þessi brauð þarf hveiti, smjör, egg, sykur, mjólk, rúsínur, ger og salt og síðast en ekki síst kryddið saffron en það kemur svona rústrauðir á lit en það eru þeir sem gera brauðið fallega gullt og af því kemur sérstakt saffranbragð og lykt.
Ein uppskrift af saffranbrauðum er svona: 125 gr. smjör eða smjörlíki
13. desember 2000 Bestu þakkir til Elsu E. Guðjónsdóttur fyrir að leyfa birtingu á Lúsíukvæðinu á þessari vefsíðu.
|