|
Jólavefurinn 2000
- Aðalsíða
Jólasaga
Þú
ert nú meiri jólasveinninn!
eftir
Hauk Agnarsson mannfræðinema

Auðvitað
þekkja allir hinn ameríska jólasvein, tákn
góðmennskunnar og jólaandans. Glaðleiti rauðklæddi
afinn sem fyrst birtist í auglýsingum frá Coca-Cola.
Í dag er hann fyrirmynd barna, draumur þeirra og þrá
en í senn sendiboði friðar og ástar. Mitt í
öllu jólastressi Vesturlanda skýtur rauðklæddur
friðarboði upp kollinum og boðar gleðileg jól í
Írak. Jólin eru tími friðar og umhyggju, líka
við Persaflóa.
Á
frostbitnu Íslandi munu senn einnig ríkja gleðileg jól.
Meðan tákn góðmennskunnar reikar um restina af heiminum
sitja frændur hans þrettán heima með frostbitnar
kinnar og kulið nef. Börnin kyrja söngva um gleðileg
jól en hlusta jafnframt á sögur um skaðræðissveinana
þrettán sem vísir eru til að hrella þau
með skemmdum kartöflum ef hegðun þeirra er ekki samkvæmt
uppskrift foreldranna. Jólaandinn er ríkjandi.
Af hverju er börnum gefin þessi svarta ímynd af íslensku
jólasveinunum? Eru þeir virkilega svona slæmir eða
liggur eitthvað meira að baki?
Herramennirnir
þrettán búa í hellum og giljum fjalla, lifa
á því sem hendi er næst og láta ekki
sjá sig í byggð nema nokkra daga á ári.
Þeir halda sig þar sem mannfólkið vill hafa þá
enda ekki velkomnir hjá íslenskum sveitalýð.
Upp í fjöllin voru þeir reknir, beittir einelti enda
ósómar og jaðarhópur í þjóðfélaginu.
Ofan á allt saman voru þeir svo uppnefndir nöfnum sem
lýsa áttu atferli þeirra og einkennum.
Jaðarhópar
virðast alltaf hafa þekkst í íslensku alþýðulífi
og nefni ég því til stuðnings Ingjaldsfíflið
sáluga sem hafður var að spotti fyrr á öldum.
Þessum hópum hefur frekar farið fjölgandi en hitt
og eru vændiskonur, eiturlyfjaneitendur og samkynhneigðir hluti
þessarar elítu dagsins í dag. Samkynhneigðir hafa
þó færst nær miðjunni og hlotið ýmsar
viðurkenningar þó nokkrir söngfuglar á þingi
mæli enn á móti þeim.
Finnum
við samlíkingu með íslensku jólasveinunum
og einum þessara nútíma jaðarhópa? Skyldu
vísnalínurnar ,,Stekkjastaur kom fyrstur, stinnur eins og
tré," segja okkur eitthvað um orku og ötulleika sveinsins?
Af hverju heitir titturinn Stúfur og gaurinn í hópnum
Giljagaur? Er það af einskærri tilviljun að sá
síðasti í röðinni sníkti kerti til að
ylja sér á síðkvöldum? Hvaða merkingu
skyldu nöfnin Þvörusleikir, Gáttaþefur, Bjúgnakrækir
og Ketkrókur hafa (aðra en þá húslegu)?
Er ,,þú ert nú meiri jólasveinninn" móðgunaryrði?
Hefur kveðjan ,,gleðileg jól" sömu merkingu hjá
íslensku jólasveinunum og hún hefur hjá saklausum
nútímaborgurum?
Líkt
og sumir jaðarhópar hafa íslensku jólasveinarnir
verið að öðlast meiri virðingu á síðustu
árum og næstum komnir í guðatölu meðal
barnanna í bænum. Leið þeirra að miðjunni
hefur þó verið býsna löng og strembin á
köflum en með þrautseygju og eljusemi hefur þeim
næstum tekist hið ómögulega, að verða viðurkenndir.
Þeim hefur tekist að bæta ímynd sína, eru
komnir úr illa lyktandi lörfunum í rauðglansandi
galla eins og bandaríski frændi þeirra og hreindýravinurinn.
Í stað þess að vilja ekki heyra minnst á jólasveinana
þrettán bíða börnin nú spennt við
gluggann í von um að sjá þá koma prílandi
upp fjölbýlishúsið og smella góðgæti
í skóinn. Jólasveinarnir eru bestu vinir barnanna!
Íslensku
jólasveinarnir verða að teljast nokkuð lýsandi
dæmi um það að leiðin frá botni upp á
toppinn sé fær þó hún sé á
köflum ekki auðveld. Þeir ættu því að
vera hvatning fyrir aðra jaðarhópa sem hafa komið að
mörgum læstum dyrum á leiðinni til betra lífs.
Ýmsar hindranir gætu virst nær óyfirstíganlegar
en með jákvæðni, þrautseygju og eljusemi er
ekkert ómögulegt. ,,Ef þú smælar framan
í heiminn, þá smælar heimurinn framan í
þig."
Gleðileg jól!
Höfundur texta
Haukur Agnarsson, mannfræði.
Birtist í Jólablaði
1999 Homo blaði mannfræðinema.
Hér
er meira efni um jólasveina af Jólavefnum 2000
Myndir
af Grýlu og jólasveinunum
Grýlu
og jólasveinakvæði
Jólasveinar
Jólasveinamyndir
Halldórs Péturssonar - eldri
Jólasveinamyndir
Halldórs Péturssonar - yngri útgáfa
Jólasveinakvæði
Þorsteins Ö Stephensens
Aðrir
vefir
Jólasveinar
Ólafs Péturssonar
Jólasveinakvæði
Jóhannesar úr Kötlum
Nýju
fötin jólasveinanna
Salvör Gissurardóttir tók
myndir og setti á vefsíðu í nóvember 2000
Ljósmyndir eru frá "Hýru stolti" skrúðgöngu
í Reykjavík sumarið 2000

Jólavefurinn 2000
- Aðalsíða
|