|
Salvör Gissurardóttir tók saman - Síðast
uppfært
22-nov-04
Þessi síða er sett upp til að minnast
200 árstíðar H.C. Andersen
H.C. Andersen gerði svona jólahjarta fyrir einni
og hálfri öld.
Hann fléttaði hjartað úr gulum og grænum
glanspappír.
Í
margar aldir var Ísland hluti af Danaveldi og gamlar
danskar jólahefðir eru líka hluti af íslenskum
hefðum. Ein slík hefð er fléttaða
jólahjartað sem núna er ein af sterkustu
af táknmyndum danskra jóla. Ævintýrasagnahöfundurinn
H.C.
Andersen klippti
mikið út úr pappír og setti bæði
pappírsdúkkur og fána á jólatré.
Hann er talinn upphafsmaður hins fléttaða danska
jólahjarta, H.C. Andersen gerði jólahjarta
árið 1860 og gaf vinkonu sinni.
Ævintýri
H. C. Andersen á íslensku

Danskir klifurjólasveinar
Rauðu og hvítu jólahjörtun og dönsku
búálfajólasveinarnir sem
klifra um allt eru hluti af jólastemmingu flestra
miðaldra Íslendinga því í bernsku
þeirra voru það dönsku blöðin
og danskt jólaföndur sem báru jólin
til Íslands (hér eru kravlenisser1
og hér eru kravlenisser2
og fleiri kravlenisser3
og ennþá fleiri kravlenisser4
og kravlenisser5
til að lita kravlenisser6
kravlenisser7
og kravlenisser8.
Teiknarinn Frederik Bramming teiknaði árið
1947 fyrstu arkirnar
af klifurjólasveinunum og hann fann upp orðið
"kravlenisser". Þessar arkir urðu geysivinsælar
svo næsta ár hermdu 12 aðrir teiknarar eftir
honum og fyrirtækið sem gaf út arkirnar fór
í mál því það vildi hafa
einkarétt á "kravlenisser". Fyrirtækið
tapaði og geta því allir teiknað og gefið
út sína klifurálfa.
Hér eru nokkrir vefir um fléttuð
jólahjörtu.
|