Hér er komin GrýlaTil bakaHér er komin Grýla
grá eins og örn.
Hún er sig svo vandfædd,
að vill ei nema börn.
Hún er sig svo vandfædd,
að vill ei börnin góð,
heldur þau sem hafa miklar
hrinur og hljóð,
heldur þau sem löt eru á lestur og söng.
Þau eru henni þægilegust,
þegar hún er svöng.
Þau eru henni þægilegust,
það veit ég nú víst.
Ef þau þekktu Grýlu,
þá gerðu þau þetta sízt.
Heimild: Ljóðabók barnanna