Til baka
Formáli Þetta er vefrit um Grýlu og íslenska jólasveina eins og þau hafa birst í kvæðum og sögnum allt frá 17. öld. Hér er dreginn fram margbreytileiki þessarra vætta og rýnt í hvaða dýpri merkingu Grýlukvæði, sögur og myndir kunna að hafa. Hluti af verkinu er safn Grýlukvæða frá undanförnum fjórum öldum og safn Grýlu- og jólasveinamynda frá 20. öld.
Fyrir höfundum vakir að birta á einum stað og með nýrri tækni sem flestar heimildir um Grýlu og jólasveina og auðvelda þannig öðrum aðgang að þessum hluta íslenskrar þjóðmenningar. Höfundar vonast einnig til að geta kveikt áhuga á að nota nýja miðla við rammíslenskt efni og sýnt á hvern hátt tæknin getur auðveldað rannsóknir og aðgengi.
Þetta ritverk er tilraun til útgáfu á vettvangi sem hingað til hefur ekki ómað íslenska alþýðumenningu. Veraldarvefurinn er öflugt tæki til útgáfu á fræðslu- og kynningarefni. Útgáfa í slíku umhverfi er mikil umbylting frá fyrri háttum, í stað hefðbundins prentverks og dreifingar í bókaverslunum er efnið sett upp á eina tölvu sem tengd er við Internetið. Þar með geta allir sem hafa Internet aðgang kallað það fram á sínum tölvum.
Framsetning efnis á Veraldarvefnum hefur opnað nýja möguleika fyrir höfunda fræðsluefnis, þeir geta nú tengt efni úr sama grunninum á margvíslega vegu. Ýmis tölvuleitarforrit létta mjög heimildaleit höfunda. Við þetta ritverk var mikil stoð að gagnasafni Morgunblaðsins, leitarforritinu AltaVista og að bókasafnskerfinu Gegni. Það hafa líka opnast nýir möguleikar á heimildanotkun og vísun í heimildir og ítarefni. Ef slíkt efni er til á rafrænu formi þá getur það einnig verið á veraldarvefnum svo fremi að höfundarrétthafar heimili það. Þá er mögulegt að tengja beint úr ritverki í heimild eða ítarefni.
Höfundar þessa ritverks eru Salvör Gissurardóttir lektor í upplýsingatækni við Kennaraháskóla Íslands og Ásta Lilja Steinsdóttir nemi í þjóðfræði við Háskóla Íslands en fjölmörg skáld og listamenn eiga verk í kvæða- og myndasafninu. Leitað var eftir leyfi höfundarrétthafa til að birta þau kvæði og myndir sem eru frá þessarri öld.
Í þessari útgáfu er mun meira fjallað um Grýlu en um jólasveina. Lagt var kapp á að koma fyrstu útgáfu á vefinn fyrir jólin 1996 og er verkið ekki komið lengi áleiðis en hér má sjá. Það er markmið höfunda að safna áfram og setja á tölvutækt form öll þau kvæði, sögur og myndir um Grýlu og íslenska jólasveina sem vitað er af og leyfi fæst til að birta. Allar ábendingar um efni sem á erindi í þannig safn eru vel þegnar og eins allar athugasemdir um það sem betur má fara.
Við vonum að þetta ritverk gagnist öllum sem vilja kynna sér og vinna áfram með þann sagnasjóð sem íslenskar vættir mynda djúpt í þjóðarvitund Íslendinga, sjóð sem er varðveittur og aukinn á þeirri öld sem nú líður hjá.
Reykjavík, 21. desember 1996
Salvör Gissurardóttir (salvor@ismennt.is)
Ásta Lilja Steinsdóttir (als@rhi.hi.is)