| |
23 desember 2004
Íslenskir jólasveinar í "Good Morning America" Eftirfarandi frásögn birtist í Good Morning America hjá ABC sjónvarpsstöðinni fyrir jólin 2004:
The Many Faces of Santa From Goblin to Peeping Tom, Santa Claus Takes Many Guises Around the World Dec. 19, 2004 ? He lives in the North Pole and rides around in a sleigh, slipping down chimneys and leaving presents under the tree. Americans all know the story of Santa Claus ? with a few minor variations.
The more people you quiz, the more you realize that Santa is an improviser. In Manhattan, he takes a cab and then the elevator. In the swamps of Louisiana, the local Cajuns claim his sleigh is pulled by flying possums. Old Kris Kringle can also tell us a lot about a country's self image. A group of British tourists in New York said that Santa comes to England first and leaves them the biggest presents. A Scottish visitor, on the other hand, complained that they get all the leftovers ? five hours after Santa stops in New York. At least he shows up. There are plenty of Santa-forsaken corners of the world, like Venezuela where Baby Jesus delivers the presents, while in Germany they await the arrival of the Christmas Angel. There is a Santa lookalike in Holland, but he is actually St. Nicholas, the former bishop of Turkey. He rides a white horse and arrives on a boat, and instead of elves, he is accompanied by six to eight black men. Bad Santa? The children of Greece sing carols and enjoy sweets while fending off the Kalikanzari ? goblins from the center of the earth who come down the chimney to cause mischief. "They extinguish the fire in the fireplaces. They sour the milk ? and sometimes they ride on your back," explained Melina McGrew, a native of Greece. They have similar problems in Iceland, where there are 13 Santas. Instead of bringing gifts, they take turns sneaking into town and creeping out the locals. "One of them is a window peeper. He just peeks through windows. One of them comes in and licks your spoons," said Iceland native Hoffy Steingrimdottir. The 13 Santas live in the mountains with their troll-like mother and her giant cat, which eats all the children who don't receive new clothes for Christmas. They party for 13 nights, and then things really get interesting. "That's when people come out of their graves," said Steingrimdottir. "Seals take on human form. And cows develop human speech." The moral of the story? It doesn't matter what you believe as long as you believe. The other moral of the story? They've got some good hooch in Iceland. This story was originally reported by ABC News' Bill Weir on "Good Morning America" Weekend. http://abcnews.go.com/GMA/story?id=342730
skrifar Salvor Gissurardottir 12/23/2004 04:37:33 AM
13 október 2004
Söngbók með gítargripum fyrir jólalög http://www.raunvis.hi.is/~uba/tuddinn/download/jol.pdf
skrifar Salvor Gissurardottir 10/13/2004 10:55:46 AM
19 desember 2003
Í desember 2003 hef ég bætt þessu við jólavefinn:
Grýluannáll 2003 Jólasveinar Ólafs Péturssonar - fékk leyfi hjá honum til að hafa þetta á mínum vef, bæði þessa á jólafrímerkjamyndum og svo eldri í lopapeysum Jólakvæði Ragnars - sniðugt jólakvæði með nýjum tæknivæddum jólasveinum
Svo hef ég bætt við tengingum í marga nýja jólavefi t.d. jolamjolk.is
Einnig hef ég sett upp síðu um meint brot hjá öðru vefsetri www.jol.is en þar var tekið fullt af efni af mínum jólavef og afritað þangað.
skrifar Salvor Gissurardottir 12/19/2003 07:44:24 PM
Jólavefur 2002
Í desember 2002 birtist viðtal við mig í Dagblaðinu og var talað um jólavefinn. Það var Vilmundur Hansen sem tók það viðtal og með því fylgdi mynd af mér að skreyta piparkökur.
skrifar Salvor Gissurardottir 12/19/2003 07:32:30 PM
28 mars 2001
Á jólavefnum 2000 setti ég eftirfarandi viðbætur helstar:
1) setti upp enska útgáfu með greinum sem ég fékk leyfi til að nota. Skrifaði nokkra pistla sjálf. En greinarnar voru um íslenska jólasveina, laufabrauðgerð, skort á mjöli, þorláksmessu og skötuát þar, dýrlinginn Þorlák helga og kertagerð, grein um hvenær kveikt er á jólatrénu á Austurvelli og almennt um jólatré, grein um Grýlu og ýmsar myndir og vísanir í aðrar síður.
2) Bætti verulega jólavefinn. Setti inn nokkrar greinar um jólasveininn. Lagaði tengingar. Bætti við grein um rafmagn og myrkur og grein um kertagerð. Gerði myndasafnið miklu aðgengilegra - setti upp nokkrar síður með myndum. Setti inn síðu um Lúsíudaginn og síðu um þegar kveikt er á jólatrénu á Austurvelli. Setti þar í fyrsta skipti bæði texta og hljóðskrár af textum eftir Elsu E. Guðjónsson, það voru midi skrár. Lagaði grýluannálinn og bætti við því sem ég vissi að er að gerast.
3) Fjölmiðlaumfjöllun í desember 2000. Það voru örugglega mjög margar heimsóknir á vefinn, veit það af þeim bréfum sem ég fæ. Jólavefurinn jol.ismennt.is fékk umfjöllun í heilsíðugrein í Morgunblaðinu eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur en hún fjallaði aðallega um Grýlu og jólasveina. Myndirnar voru líka teknar af vefnum eða vísunum frá honum. Einnig var heilsíðugrein í DV um grýlu og jólasveina sem greinilega studdist að mestu leyti við efni á jol.ismennt.is. Einnig birtist í finnska menningarnetinu og danska menningarnetinu greinar á finsku og dönsku um jólavefinn og eitthvað erlent veftímarit (ferðavefur eða matarsiðavefur held ég) bað um leyfi til að birta myndirnar af skötuveislunni í Naustinu með grein sem þeir ætluðu að skrifa um íslenska þorláksmessu. Man ekki nafnið á þeim vef. Garðar Jóhann vísaði í jol.ismennt.is á jólavefnum sínum og veit ég að það hefur haft mikið að segja um aðsókn því hans jólavefur er mikið sóttur og þekktur erlendis og hefur hingað til verið eina efnið á ensku um íslenskt jólahald.
Ég fékk mörg bréf seinni hluta árs 1999 frá enskumælandi fólki sem vildi upplýsingar um íslenskt jólahald, í sumum tilvikum til að fjalla um það á vefsíðum eða tímaritum. Það varð eiginlega kveikjan að því að ég ákvað að setja einhvern hluta af vefnum á ensku. Svoldið skrýtið því upphaflega var þessi vefur settur upp til mótvægis við ensku sem á þeim tíma (árið 1996) var það mál sem flestar vefsíður voru á. Ég setti upp þennan jólavef þá til að sýna hvernig við gætum notað nýja tækni til að miðla gamalli menningu sem byggi með okkur og væri hluti af alþýðumenningu og kannski líka menningu sem hingað til hefur ekki verið skráð.
skrifar Salvor Gissurardottir 3/28/2001 07:19:30 PM
08 desember 2000
Skólatorgið hefur sett upp jólavef með ýmsum föndurhugmyndum.
skrifar Salvor Gissurardottir 12/8/2000 01:07:18 PM
Hér bæti ég meiru við
skrifar Salvor Gissurardottir 12/8/2000 07:20:18 AM
Hér er meiri póstur
skrifar Salvor Gissurardottir 12/8/2000 07:15:20 AM
Ríkisútvarpið, Rás 1 hefur sett upp jólavef. slóðin er www.ruv.is/jol
skrifar Salvor Gissurardottir 12/8/2000 07:07:18 AM
Nu hefst jólaannáll 2000. Hérna nota ég kerfi sem heitir blogger.com til að setja inn svona slitrur úr því sem helst er að gerast og varðar íslenskt jólahald og þennan jólavef. 8. des. breytt
skrifar Salvor Gissurardottir 12/8/2000 07:01:58 AM
|